Art no: 460087
Silky Zübat 3900 330-7,5 pólsagirnar eru léttar og meðfærilegar í notkun, hannaðar fyrir atvinnumenn, skógarfólk og garðyrkjumenn. Handfang með hrágúmmíi gefur gott grip og auðvelt er að saga greinar í allt að 4m hæð frá jörðu. Slíður fylgir söginni. Auðvelt er að skipta um sagarblað eins og á öllum Silky sögum.
- Framlengjanlegt skaft úr áli
- Lengd útdregin: 3,3m með sagarblaði
- Lengd samandregin: 1,9m
- Sagarblað úr hágæða japönsku stáli, nikkelhúðað
- Lengd sagarblaðs: 330mm
- Sagartennur: 7,5 tennur per 30mm, gróftennt sem hentar fyrir ferskan við
- Radíus: 650
- Þyngd 3900 sög: 1387g
Aukahlutir fáanlegir á VORVERK.IS:
- Zübat 330-7 aukablað ásamt festingu fyrir skaft og slíðri - Art no: 460063
- Zübat 330-7 aukablað - Art no: 460052