Class 1: Vörn við keðjusög með hraða allt að 20 m/s
Type A: Vörn framan á skálmum
Litir - Mismunandi litir á lager hverju sinni
Marglaga tæknilegar keðjusagarbuxur. Framleiddar úr Dyneema og Climasphere efni sem er eitt sterkasta efnið fáanlegt í fatnaði en samt með útöndun og teygjanlegar (stretch) sem eykur þægindin við vinnu. Kevlar styrking á neðri hluta skálmanna. Buxurnar hafa lítið viðnám og henta m.a. vel fyrir þá sem þurfa að klifra í trjám við fellingar. Styrktir saumar fyrir aukinn styrk og endingu, auk styrkingar kringum ökla.
Mótuð hné með aukinni vídd. Rennd loftunarop aftan á skálmum. Allir vasar með vatnsheldum rennilásum.
Buxurnar eru í flestum litum fáanlegar í tveimur mismunandi síddum: Regular / Tall. Almennt eigum við buxur í regular sídd á lager og sérpöntum aðra sídd, en eins og er eigum við XL-tall á lager.
Ef þig vantar aðra stærð en þær sem eru í augnablikinu til í vefverslun, eða vilt panta annan lit, vinsamlega hafðu þá samband með tölvupósti á vorverk@vorverk.is eða í síma 665-7200.
Ath. að sniðið á BreatheflexPro buxunum er örlítið þrengra en á hefðbundnum Breatheflex buxum, þannig að munar um ca. hálft númer.
Ath. að litasamsetning á marglitu buxunum er breytileg og getur því verið önnur en myndin sýnir.
Staðlar:
EN381-5 Class 1 (20m/s) Type A