RUSKOVILLA silki & ull


Ruskovilla eru finnskar gæðaflíkur sem henta Íslendingum í útivist og útivinnu alla 12 mánuði ársins. Hér færðu í fullorðinsstærðum skógargrænar og svartar peysur, boli og föðurland úr 100% merino ull ásamt svörtum bolum, gammosíum og stuttum undirbuxum (boxers) úr 100% silki, svo og stuttum undirbuxum úr silki-&ullarblöndu (30% silki, 70% ull). Ruskovilla flíkurnar eru allar lífrænt vottaðar og framleiddar í Finnlandi. Lífræn framleiðsla stendur fyrir aðferðir sem ekki eru skaðlegar umhverfi eða heilsu og velferð fólks, plantna og dýra.