Skógarylur – íslenskir ylkubbar - Eldiviður - íslensk framleiðsla
Harðpressaðir sagkubbar til að nota í opin og lokuð eldstæði eða hvar sem ylinn vantar.
Ylkubbarnir eru framleiddir úr sagi og afskurði sem fellur til í miklu magni við viðarvinnslu hjá Skógarafurðum. Þeir eru 100% úr íslensku hráefni og framleiddir í Fljótsdal með grænni orku frá Orkusölunni. Ylkubbarnir eru seldir í tvennskonar endurvinnanlegum pappaumbúðum
2,5kg - art no: 490016 2.5kg handhægar umbúðir sem er þægilegt að grípa með – hæfilegur skammtur í arininn sem brennur upp á um 2 klst. og hægt að kveikja beint í umbúðunum.
10kg - art no: 490017 Fyrir stórnotendur, 10 kg af ylkubbum. Til að auðvelda uppkveikjuna eru í hverjum umbúðum kubbar sem dýft hefur verið í endurnýtt vax.